Á árunum 2002-2012 voru framin alla vega 12 morð á Filippseyjum sem tengjast söng á laginu My Way í
karaoke. Hvernig má þetta vera? Hvað þarf að skoða? Í þessum þríleik dveljum við ekki við hvert og eitt morð heldur reynum að finna mögulegar orsakir þess að alla vega 12 menn voru myrtir á Filippseyjum þegar þeir sungu sama lagið í karaoke. Við skoðum samfélags-strúktúr og menningu, þýðingu lagsins í filippeysku samfélagi, ást Filippseyinga á söng, karaoke sem útrás og listform, karaoke sem órjúfanlegan hluta af filippeysku samfélagi, stéttaskiptingu, nýlenduherrana Spánverja á 16. öld, kaup Bandaríkjanna á Filippseyjum í lok 19. aldar, kúgun, stolt þjóðar, áhrif raddarinnar og söngsins á tilfinningar okkar og mögulega yfirnáttúrulega krafta og andsetið lag. Viðmælendur: Bragi Valdimar SkúlasonEygló Höskuldsdóttir Viborg Hannes Þórður Hafstein ÞorvaldssonIngibjörg Stefánsdóttir Margrét Erla Maack Marj Einarsson Michael Charlston (Xiao) Chua Lestur: Gígja Hólmgeirsdóttir Jóhannes ÓlafssonDagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal Aðstoð við framleiðslu: Gígja Hólmgeirsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.